Home Fréttir Í fréttum Framkvæmdir ganga vel við Hús Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands

Framkvæmdir ganga vel við Hús Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands

27
0
Framkvæmdir ganga vel við Hús Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands
Heimild: NLSH.is

Framkvæmdir ganga vel við Hús Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands

Framkvæmdir ganga vel við Hús Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands og nálgast nú mikilvæg tímamót í uppbyggingu mannvirkisins.

Mest allri steypuvinnu er lokið og verkefnið komið á næsta stig þar sem unnið er að uppsetningu ytri hjúps byggingarinnar.

Um þessar mundir er verið að setja upp glerveggjakerfi utan á steypuvirkið sem mun mynda ytri klæðningu hússins.

Steypuvinnu að ljúka

Framkvæmdir hafa gengið samkvæmt áætlun og er nú komið að lokakafla steypuvinnunnar.

Samhliða uppsetningu glerveggjakerfis er verið að reisa stálgrind á fimmtu og jafnframt efstu hæð hússins. Þar verður tæknirými byggingarinnar staðsett.

Nýr áfangi framundan

Að sögn Jóhanns Gunnars Ragnarssonar, verkefnastjóra hjá NLSH, er stórum áfanga að ljúka á næstu vikum.

„Stórum áfanga fer að ljúka í framkvæmdinni þegar síðasta steypan verður tekin en áætlað er að hún verði um miðjan júní og þá tekur alfarið við að loka húsinu,“ segir Jóhann Gunnar.

Mikilvæg uppbygging fyrir Háskóla Íslands

Hús Heilbrigðisvísindasviðs verður mikilvæg viðbót við aðstöðu Háskóla Íslands og mun styrkja kennslu, rannsóknir og samstarf á sviði heilbrigðisvísinda.

Framkvæmdir hafa gengið vel undanfarna mánuði og er nú unnið að því að loka byggingunni áður en innanhússfrágangur tekur við á næstu stigum verkefnisins.

Heimild: NLSH.is