Home Fréttir Í fréttum Bústaðurinn endurnýjaður fyrir hundruð milljóna

Bústaðurinn endurnýjaður fyrir hundruð milljóna

17
0
Bústaðurinn endurnýjaður fyrir hundruð milljóna
Búið er að taka Ráðherrabústaðinn í gegn. mbl.is/Ólafur Árdal

Bústaðurinn endurnýjaður fyrir hundruð milljóna

Framkvæmdir við Ráðherrabústaðinn við Tjarnargötu kostuðu tæplega 362 milljónir króna og kostnaður við innkaup á tækjum og öðrum búnaði nam rúmlega 54 milljónum króna.

Þetta kemur fram í skriflegu svari frá forsætisráðuneytinu við fyrirspurn mbl.is.

Umfangsmiklar framkvæmdir, í samstarfi við Minjastofnun Íslands, við Ráðherrabústaðinn hófust haustið 2023.

Umfangsmiklar framkvæmdir

„Helstu framkvæmdir fólust í endurbyggingu garðskála á suðurhlið hússins nærri fyrri mynd hans, uppsetningu misturskerfis og öðrum aðgerðum til að bæta brunavarnir í húsinu, endurnýjun allra neysluvatnslagna í húsinu, uppsetningu hjólastólalyftu við aðalinngang hússins og breytingum á salerni til að gera það aðgengilegt fyrir hreyfihamlaða,“ segir í svari ráðuneytisins.

„Þá voru viðargólf slípuð og lökkuð, dúkalögð gólf endurnýjuð og veggir og loft ýmist veggfóðruð eða máluð. Allt tréverk var lakkað og eldunaraðstaða og vinnuaðstaða starfsfólks í húsinu endurnýjuð.“

Fór fram úr áætlunum

Heildarkostnaður við verklegar framkvæmdir við Ráðherrabústaðinn nam 361.916.533 krónum, en fyrri kostnaðaráætlun frá síðasta ári gerði ráð fyrir kostnaði upp á um 336 milljónir kr.

Ástæða þess að kostnaður fór fram úr áætlunum var sú að framkvæmdir á suðurgafli hússins reyndust umfangsmeiri en upphaflega var gert ráð fyrir.

Kostnaður við innkaup á húsgögnum, eldhúsinnréttingum- og tækjum og öðrum búnaði nam 54.498.817 krónum.

Heimild: Mbl.is

Efni: Bústaðurinn endurnýjaður fyrir hundruð milljóna