
Stórhýsi Alvotech rísi á Granda
Byggja á stórhýsi undir starfsemi líftæknifyrirtækisins Alvotech við Fiskislóð á Granda.
Morgunblaðið sagði fyrst frá þessum áformum í september 2025. Skipulagsfulltrúi tók jákvætt í þessar hugmyndir og kom með ábendingar varðandi frekari vinnu við deiliskipulag lóðanna.
Nú eru þessi áform komin á næsta stig og tekið tillit til ábendinganna. Vísaði skipulagsfulltrúinn málinu til umhverfis- og skipulagsráðs borgarinnar til afgreiðslu.
Lóðirnar Fiskislóð 33-37 standa á landfyllingu við sjóinn og ná frá bílaþvottastöðinni Löðri að húsi Brimrúnar í jaðri olíubirgðastöðvarinnar.
Heimild: Mbl.is











