
Brunakerfi stúdentagarða fer í gang við sturtuferðir
Íbúar stúdentagarða að Sæmundargötu krefjast þess að brunavarnarkerfi hússins verði lagað eða því skipt út fyrir annað traustara kerfi. Er kerfið einstaklega viðkvæmt fyrir gufu og fer í gang eftir sturtuferðir og almenna eldamennsku.
Þetta kemur fram á undirskriftarlista íbúa hússins. Þegar brunavarnarkerfi fari svo oft af stað án þess að um raunverulega hættu sé að ræða skapi það vantraust og viðbragðsleysi, eins og margir þekkja úr dæmasögunni Úlfur úlfur. Hafa nú vel yfir hundrað manns skrifað undir.
Eru þau ósátt viðbragða Félagsstofnunar stúdenta vegna vandamálsins.
Brunakerfið í gang við sturtuferðir
Matthildur María Kristínardóttir, íbúi í húsinu og ábyrgðarmaður undirskriftarlistans, flutti inn í húsið ásamt kærasta sínum 18. mars. Segir hún fljótt hafa komið í ljós að brunakerfið væri ekki eðlilegt.
„Hann sendir viðgerðarbeiðni á FS og þeir biðja okkur um að kynna okkur málið betur því brunakerfið væri svo viðkvæmt fyrir gufu,“ segir Matthildur og bætir við að það geti verið erfitt að elda mat og fara í sturtu.
„Það sendi ein á mig og sagði að hún hefði kveikt á brunakerfinu bara við það að fara í sturtu, sem er ekki eðlilegt. Ég er stundum að vakna um miðja nótt því þetta fer í gang. Maður hættir að trúa þessu svo ég stofnaði þennan undirskriftarlista og þegar það voru komnar yfir hundrað undirskriftir fór ég með listann til þeirra og bað um að þetta yrði lagað.“
Lagfæringar ekki á dagskrá
Var hún þó ekki sátt með svörin sem hún fékk við því. Hafi þau aðeins ítrekað reglurnar sem um þetta gilda og ekki sé á dagskrá að ráðast í lagfæringar.
Heimild: Mbl.is
Efni: Brunakerfi stúdentagarða fer í gang við sturtuferðir











