Home Fréttir Í fréttum Skuldir fyrirtækja í byggingariðnaði fara vaxandi

Skuldir fyrirtækja í byggingariðnaði fara vaxandi

32
0
Skuldir fyrirtækja í byggingariðnaði fara vaxandi
Húsnæðisverð fer lækkandi og sölutími nýrra íbúða er langur. RÚV – Ragnar Visage

Skuldir fyrirtækja í byggingariðnaði fara vaxandi

Fjármálakerfið á Íslandi er traust og vel í stakk búið til að mæta ófyrirséðum áföllum samkvæmt fjármálastöðugleikanefnd. Lánveitendur þurfa þó að gæta að aukinni áhættu í byggingargeiranum vegna lækkandi húsnæðisverðs og langs sölutíma nýrra íbúða.

Skuldahlutföll heimila og fyrirtækja eru almennt lág og vanskil lítil, en skuldir fyrirtækja í byggingarstarfsemi hafa vaxið undanfarin misseri og merki eru um vaxandi vanskil þó þau séu enn tiltölulega lítil.

Fjármálakerfið á Íslandi er traust og vel í stakk búið til að mæta ófyrirséðum áföllum, samkvæmt yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar sem send var út rétt í þessu.

Þar segir að viðvarandi óvissa í alþjóðlegum efnahagsmálum, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á viðnámsþrótt fjármálakerfisins á komandi misserum. Álagspróf Seðlabanka Íslands bendir til þess að stóru bankarnir þrír geti staðið af sér verulegt áfall án þess að skerða um of framboð lánsfjár til viðskiptavina.

Lánveitendur þurfa þó að gæta að aukinni áhættu í byggingargeiranum vegna húsnæðisverðs, sem hefur lækkað í raunvirði, fjölgunar íbúða í sölu og langs sölutíma, sérstaklega á nýjum íbúðum.

Lausn fyrri kortagreiðslur í netleysi innleidd um mitt ár

Áhætta í rekstri fjármálainnviða hefur aukist og vaxandi netógn fylgir tæknivæðingu, þróun í gervigreind og óróa á alþjóðavettvangi. Fjármálastöðugleikanefnd segir mikilvægt að Seðlabankinn, stjórnvöld og aðilar á fjámálamarkaði vinni markvisst saman að því að draga úr áhættu og treysta viðbúnað.

„Kortagreiðslur í netleysi eru þýðingarmikill þáttur í viðnámsþrótti greiðslumiðlunar. Sú lausn verður innleidd um mitt ár. Fjármálastöðugleikanefnd leggur áherslu á að fjölga þurfi greiðsluleiðum með innviðum fyrir nýjar greiðslulausnir, svo sem greiðslur með millifærslum. Fjölbreytni í greiðslumiðlun eykur seiglu fjármálakerfisins og dregur úr líkum á víðtækri röskun við alvarleg rekstraratvik.

Heimild: Ruv.is

Efni: Skuldir fyrirtækja í byggingariðnaði fara vaxandi