Home Á döfinni Fyrirhugaðar opnanir útboða 19.06.2026 FSRE auglýsir eftir varðveisluhúsnæði

19.06.2026 FSRE auglýsir eftir varðveisluhúsnæði

41
0
FSRE auglýsir eftir varðveisluhúsnæði

FSRE auglýsir eftir varðveisluhúsnæði fyrir Þjóðskjalasafn, Listasafn og Náttúruminjasafn Íslands

FSRE auglýsir eftir varðveisluhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu fyrir Þjóðskjalasafn Íslands, Listasafn Íslands og Náttúruminjasafn Íslands. Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir (FSRE), fyrir hönd ríkissjóðs, óskar eftir leigutilboðum í húsnæði sem hentar til varðveislu skjala, safnmuna og annarra mikilvægra gagna.

Um er að ræða leiguverkefni sem nær til varðveislurýma og tengdrar starfsemi til 5–10 ára með möguleika á framlengingu.

Leitað að 1.500–2.500 fermetra húsnæði

Gerð er krafa um að húsnæðið sé á höfuðborgarsvæðinu og henti fyrir varðveislu gagna og safnmuna.

Þarfirnar ná meðal annars til:

  • Varðveislurýma
  • Móttöku bretta
  • Flokkunar- og úrvinnslurýma
  • Starfsmannaaðstöðu
  • Innkeyrsluhurðar fyrir stóra sendibíla

Húsnæðisþörfin er á bilinu 1.500–2.500 fermetrar og er æskilegt að skjalageymslan sé að mestu í einu samfelldu rými.

Kröfur um afhendingu og staðsetningu

Húsnæðið skal vera fullbúið og tilbúið til notkunar sem fyrst og eigi síðar en þremur mánuðum eftir undirritun leigusamnings.

FSRE leggur áherslu á að byggingin sé ekki staðsett á svæðum þar sem hætta er talin vegna náttúruvár, svo sem:

  • Jarðskjálfta
  • Flóða
  • Sprungusvæða

Reynsla leigusala metin

Leigusalar þurfa að sýna fram á reynslu af uppbyggingu og rekstri atvinnuhúsnæðis.

Með tilboðum skulu meðal annars fylgja upplýsingar um:

  • Stærð og staðsetningu húsnæðis
  • Leiguverð á fermetra
  • Heildarleiguverð á mánuði
  • Fjölda bílastæða
  • Aðkomu að húsnæði
  • Skipulag og deiliskipulag svæðisins
  • Reynslu af fasteignarekstri

Mat á tilboðum

Við mat á tilboðum verður meðal annars horft til:

  • Leiguverðs
  • Stærðar og skipulags húsnæðis
  • Öryggis
  • Afhendingartíma
  • Staðsetningar
  • Aðkomu að húsnæðinu

FSRE áskilur sér rétt til að hafna öllum tilboðum ef engin þeirra uppfylla þarfir verkefnisins.

Tilboðsfrestur til 19. júní

Tilboð skulu berast í útboðskerfi FSRE fyrir 19. júní 2026 kl. 13:00.

Allar nánari upplýsingar er að finna í útboðskerfi FSRE, TendSign.is.

Leiðbeiningar varðandi skráningu og skil tilboða er að finna á hér.

Beinn hlekkur á auglýsinguna ásamt gögnum í útboðskerfi