Home Fréttir Í fréttum Sæbrautarstokkur – yfir 100 manns mættu á kynningarfund um framkvæmdina

Sæbrautarstokkur – yfir 100 manns mættu á kynningarfund um framkvæmdina

41
0
Sæbrautar­stokkur
Opinn kynningarfundur vegna Sæbrautarstokks í Vogaskóla 1. júní 2026

Sæbrautarstokkur – yfir 100 manns mættu á kynningarfund um framkvæmdina

Sæbrautarstokkur var til umræðu á opnum kynningarfundi sem Reykjavíkurborg, Vegagerðin og Betri samgöngur stóðu fyrir í Vogaskóla þann 1. júní. Á annað hundrað manns mættu á fundinn þar sem kynnt voru helstu atriði framkvæmdarinnar, umhverfismat og skipulagstillögur fyrir Vogahverfi og Vogabyggð.

Þorsteinn R. Hermannsson, framkvæmdastjóri Betri samgangna, stýrði fundinum og fór yfir helstu atriði Samgöngusáttmálans.

m

Framkvæmd og umhverfismat kynnt

Á fundinum kynnti Kristján Árni Kristjánsson, verkfræðingur hjá Vegagerðinni, framkvæmd Sæbrautarstokks og helstu verkþætti verkefnisins.

Þórhildur Guðmundsdóttir, verkfræðingur hjá Verkís, kynnti umhverfismat framkvæmdarinnar og áhrif hennar á nærliggjandi svæði.

Upptöku af fundinum er að finna hér:

Einnig voru kynntar nýjar skipulagstillögur fyrir Vogahverfi og Vogabyggð af þeim Birni Guðbrandssyni arkitekt hjá Arkís og Sigríði Magnúsdóttur arkitekt hjá Teiknistofunni Tröð.

Opinn kynningarfundur vegna Sæbrautarstokks í Vogaskóla 1. júní 2026.

Grænn garður yfir stokknum

Sæbrautarstokkur er eitt stærsta samgönguverkefni Samgöngusáttmálans á höfuðborgarsvæðinu.

Stokkurinn verður um einn kílómetri að lengd og mun liggja frá mislægum gatnamótum við Miklubraut og norður fyrir gatnamót Kleppsmýrarvegar og Skeiðarvogs.

Á yfirborði stokksins verður nýr grænn hverfisgarður sem mun tengja betur saman Vogahverfi og Vogabyggð.

Opinn kynningarfundur vegna Sæbrautarstokks í Vogaskóla 1. júní 2026.

Bætt umferðarflæði og tenging við Borgarlínu

Markmið verkefnisins er að:

  • Bæta umhverfisgæði á svæðinu
  • Tengja betur saman hverfi sitt hvoru megin Sæbrautar
  • Auka umferðarflæði á einni fjölförnustu samgönguæð landsins
  • Styðja við uppbyggingu Borgarlínu
  • Bæta aðkomu að Sundahöfn og vöruflutningum
  • Styðja við framtíðaruppbyggingu Sundabrautar

Sæbrautarstokkur er því lykilverkefni í framtíðarskipulagi samgangna á höfuðborgarsvæðinu.

Opinn kynningarfundur vegna Sæbrautarstokks í Vogaskóla 1. júní 2026.

Opið fyrir athugasemdir

Kynningargögn og skipulagstillögur eru aðgengilegar í Skipulagsgáttinni.

Athugasemdafrestur vegna skipulagstillagnanna stendur til 24. júní 2026 en umhverfismatsskýrslan verður til kynningar til 29. júní 2026.

Heimild: Vegagerðin.is