Innviðaráðherra var gestur á aðalfundi Mannvirkis
Innviðaráðherra var gestur á aðalfundi Mannvirkis – félags verktaka, þar sem fjallað var um stöðu innviðauppbyggingar og framtíð mannvirkjageirans á Íslandi.
Aðalfundurinn fór fram í Húsi atvinnulífsins 13. maí og var Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra sérstakur gestur fundarins.
Á fundinum ræddi ráðherra við fundargesti um stöðu framkvæmda- og húsnæðismála, auk þess sem farið var yfir helstu áskoranir og tækifæri í uppbyggingu innviða um land allt. Löng hefð er fyrir þátttöku innviðaráðherra á aðalfundum félagsins og endurspeglar það mikilvægt samtal stjórnvalda og atvinnulífs um þróun mannvirkjageirans.

Húsnæðisuppbygging og innviðir í forgrunni
Í skýrslu stjórnar Mannvirkis kom fram að starfsárið hefði verið annasamt þar sem félagið lagði ríka áherslu á hagsmunagæslu verktakafyrirtækja og bætta umgjörð rekstrar í greininni.
Meðal helstu áherslumála voru:
- Húsnæðisuppbygging um land allt
- Fjárfestingar í innviðum
- Bætt rekstrarumhverfi fyrirtækja
- Eftirlit með álögum sveitarfélaga
- Öryggis- og menntamál í byggingariðnaði
- Endurskoðun á ÍST 30 staðlinum
- Greiningar á hækkandi byggingarkostnaði
Á fundinum var einnig farið yfir stöðu verkefna sem tengjast þróun byggingariðnaðarins og samkeppnishæfni íslenskra verktakafyrirtækja.

Stjórn Mannvirkis endurkjörin
Aðalfundurinn samþykkti að endurkjósa sitjandi stjórn félagsins. Í stjórn Mannvirkis sitja:
- Sigþór Sigurðsson, Colas Ísland ehf., formaður
- Gylfi Gíslason, JÁVERK ehf., varaformaður
- Einar Hrafn Hjálmarsson, Íslenskir aðalverktakar hf.
- Karl Andreassen, ÍSTAK hf.
- Sveinn Hannesson, Jarðboranir hf.

Mannvirki er starfsgreinahópur innan Samtaka iðnaðarins sem vinnur að hagsmunamálum fyrirtækja í mannvirkja- og verktakastarfsemi með það að markmiði að stuðla að öflugri innviðauppbyggingu, fagmennsku og bættu rekstrarumhverfi í greininni.
Heimild: SI.is












