Home Fréttir Í fréttum Fresta útboði í brú yfir Djúpafjörð um óákveðinn tíma

Fresta útboði í brú yfir Djúpafjörð um óákveðinn tíma

112
0
Fresta útboði í brú yfir Djúpafjörð
Lengi hefur staðið til að brúa Djúpafjörð, með 210 metra langri netbogabrú. Vegagerðin

Fresta útboði í brú yfir Djúpafjörð

Óvíst er hvenær útboð hefst vegna smíði brúar yfir Djúpafjörð. Stefnt var að því að verkið yrði boðið út um síðustu áramót.

Tafir verða á útboði Vegagerðarinnar í smíði brúar yfir Djúpafjörð. Til stóð að verkið færi í útboð um miðjan mánuð, en samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni þarf að endurskoða ákveðna þætti verksins áður en útboðsheimild verður veitt.

Vegagerðin vill ekki gefa upp nýja dagsetningu fyrir útboð á þessu stigi, en segja verkið verða boðið út eins fljótt og auðið er.

Nýlega var sagt frá því að brúin færi í útboð í lok apríl en síðasta haust hafði Vegagerðin talið að útboðið færi fram um áramótin. Tvær steyptar brýr yfir Djúpafjörð og Gufufjörð eru í vinnslu og þeim framkvæmdum á að ljúka um áramót. Þriðja og síðasta brúin á að vera 250 metra löng stálbogabrú yfir Djúpafjörð.

Það er lokahnykkurinn í vegbótum á Vestfjarðavegi 60 um sunnanverða Vestfirði. Þegar þeim er lokið verður leiðin um hálftíma styttri og öll klædd bundnu slitlagi. Vegagerðin gerir ráð fyrir verklokum 2028.

Heimild: Ruv.is