Hönnunarsamkeppni um Akureyrarvöll
Tillaga ALARK arkitekta hlaut fyrstu verðlaun í opinni hönnunarsamkeppni um skipulag Akureyrarvallar og nágrennis en niðurstöðurnar voru kynntar í Hofi á Akureyri í gær.
Alls bárust 16 tillögur í samkeppnina sem Akureyrarbær stóð fyrir í samstarfi við Arkitektafélag Íslands. Ein tillaga reyndist ógild og tók dómnefnd því afstöðu til 15 gildra tillagna.

„Akureyrarvöllur“ hlaut fyrstu verðlaun
Sigurtillagan bar yfirskriftina „Akureyrarvöllur“ og er eftir feðgana Kristján Ásgeirsson og Óla Geir Kristjánsson hjá ALARK arkitektum í Kópavogi.
Að mati dómnefndar er tillagan:
- Heildstæð og sannfærandi
- Skapar eftirsóknarvert miðbæjarsvæði
- Styður við gott búsetuumhverfi
- Styrkir tengingar við nærliggjandi hverfi
- Endurvekur Akureyrarvöll sem lifandi samkomustað
Sterkar tengingar við sögu og staðaranda
Í umsögn dómnefndar kemur meðal annars fram að helsti styrkur tillögunnar sé skýr heildarsýn og raunhæf nálgun á þróun svæðisins.
Þá er sérstaklega nefnt að:
- Gott samspil skapist milli miðbæjar og norðursvæða
- Landslagshönnun sé sterk
- Sögulegar skírskotanir séu bæði aðlaðandi og raunhæfar í rekstri og viðhaldi
Dómnefndin telur tillöguna skapa skýran tengipunkt í miðbæ Akureyrar með sterkri tengingu við sérkenni svæðisins.
Marimo og Teikna í verðlaunasætum
Í öðru sæti varð tillagan „Brúum hjarta Akureyrar“ eftir marimo arkitekta.
Í þriðja sæti varð tillagan „Vallartorg“ eftir Teikna – Teiknistofu Arkitekta.
Á vef Arkitektafélags Íslands má nálgast nánari umfjöllun um allar þær 15 tillögur sem tóku þátt í samkeppninni.
Heimild: Akureyri.is













