
Nýtt Hafnarhús
Stjórn Faxaflóahafna hefur falið Gunnari Tryggvasyni hafnarstjóra að vinna að áformum um byggingu nýrra höfuðstöðva fyrirtækisins.
Miðað verði við að nýtt Hafnarhús rísi á lóð við Skarfabakka í Sundahöfn. Þar verði sameinuð undir eitt þak sú starfsemi sem í dag fer fram í Hafnarhúsi við Tryggvagötu og Bækistöð við Fiskislóð, í návígi við þungamiðju starfsemi félagsins í Sundahöfn.
Með þessu yrði svæðið við norðurenda Skarfabakka að „heimatorfu“ Faxaflóahafna. Þar yrðu Hafnarhúsið, farþegamiðstöðin Vör og dráttarbátafloti fyrirtækisins við bryggju.
Heimild: Mbl.is











