
„Þessar framkvæmdir í Blöndudal eru heilmikið föndur sem hefur tekið sinn tíma. Brúin er komin vel til ára sinna, þurfti því viðhald og í svona verkefnum er að mörgu að hyggja,“ segir Júlíus Róbertsson.
Hann er einn liðsmanna í brúarvinnuflokki Vegagerðarinnar sem síðustu mánuði hefur verið að störfum við brúna yfir Blöndu nærri Löngumýri í Austur-Húnavatnssýslu.
Þetta er stór hengibrú, smíðuð árið 1944, og eftir notkun í meira en 80 ár þurfti að gera ýmsar endurbætur. Farið var í steypuviðgerðir, bæði á stöplum og turnunum tveimur sem halda uppi vírivirkinu sem brúargólfið hvílir á. Einnig þurfti að dytta að handriðum og nefna mætti fleira.“
Heimild: Mbl.is











