Home Fréttir Í fréttum Framkvæmdir við hús Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands

Framkvæmdir við hús Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands

102
0
Framkvæmdir
Mynd: NLSH.is

Framkvæmdir: Stærstu steypuvinnu lokið við stækkun Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands.

Mikilvægum áfanga var náð í framkvæmdum við stækkun á húsi Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands þegar síðasta og stærsta einstaka plötusteypan fór fram þann 21. apríl síðastliðinn.

Flatarmál steypta svæðisins var um 720 fermetrar og fóru um 270 rúmmetrar af steinsteypu í plötuna. Vegna umfangs framkvæmdarinnar, hæðar mannvirkisins og fjarlægðar frá byggingarsvæðinu þurfti steypuvinnan að fara fram frá vinnubúðarreit.

Með þessum áfanga fer stærstum hluta steypuvinnu verkefnisins að ljúka, en eftir eru þó minni steypur ásamt steypuvinnu við tengigang milli rannsóknahúss og húss Heilbrigðisvísindasviðs.

Uppsetning stálvirkis á fimmtu hæð hafin

Samkvæmt upplýsingum frá framkvæmdaraðilum er allt stál fyrir tæknirými á fimmtu hæð nú komið til landsins og gengur uppsetning þess vel.

Tæknirýmið verður staðsett efst í byggingunni og er uppsetning stálgrindarinnar hluti af næsta framkvæmdafasa verksins.

Glerhjúpur hússins tekur á sig mynd

Fyrstu gámasendingar af glerveggjakerfi sem mun mynda ytri hjúp hússins eru einnig komnar til landsins og er uppsetning hafin á suðurhlið byggingarinnar.

„Þetta er mikilvægur áfangi og fer framkvæmdin nú á næsta fasa þar sem vinna við glerveggjakerfi og stálgrindarhús á fimmtu hæð er hafin. Mikil eftirvænting er að sjá þegar hjúpurinn kemur og útlit hússins kemur í ljós,“ segir Jóhann Gunnar Ragnarsson, verkefnastjóri hjá NLSH.

Framkvæmdir við stækkun Heilbrigðisvísindasviðs eru hluti af áframhaldandi uppbyggingu rannsóknar- og kennsluaðstöðu Háskóla Íslands.

Heimild: NLSH.is