Sveitarfélagið Árborg hefur lagt fram að nýju tillögu deiliskipulags fyrir hesthúsasvæði Hestamannafélagsins Sleipnis á Selfossi.
Nýja tillagan er með uppfærðu mati á umhverfisáhrifum en fyrri tillaga var sem kunnugt er felld úr gildi með úrskurði úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála í síðasta mánuði.
Að mati nefndarinnar var ekki fjallað með fullnægjandi hætti um umhverfisáhrif deiliskipulagsins til þátta eins og lyktar, rykmyndunar, hljóðvistar, umferðarálags og áhrifa á sjónræna þætti.
Byggingafyrirtækið Fagraland ehf. kærði ákvörðun bæjarstjórnar Árborgar um að samþykkja nýtt deiliskipulag fyrir hesthúsasvæði Hestamannafélagsins Sleipnis.
Tillagan náði til alls hesthúsahverfisins. Gert var ráð fyrir stækkun svæðisins til suðausturs um sjö hektara auk þess sem áætlað var að bæta við 19 nýjum lóðum undir hesthús, byggja upp reiðstíg og nýta landið undir viðrunarhólf, reiðgerði o.fl.
Heimild: Mbl.is












