Home Fréttir Störf Stéttafélagið ehf. leitar að vörubílstjóra á krókbifreið

Stéttafélagið ehf. leitar að vörubílstjóra á krókbifreið

27
0
Stéttafélagið ehf.

Verktakafyrirtækið Stéttafélagið ehf. auglýsir eftir reyndum vörubílstjóra til starfa á fjögurra öxla krókbifreið ásamt akstri á hefðbundnum fjögurra öxla vörubíl með malarpalli.

Fyrirtækið starfar á sviði jarðvinnu, veitulagna, mannvirkjagerðar og lóðafrágangs og hefur verið umsvifamikið í framkvæmdaverkefnum á höfuðborgarsvæðinu og nágrenni þess.

Fjölbreytt verkefni á framkvæmdamarkaði

Samkvæmt auglýsingu hefur Stéttafélagið verið virkt á útboðsmarkaði og komið að fjölbreyttum verkefnum, þar á meðal:

  • Viðbyggingum við skólamannvirki
  • Endurbótum fasteigna sveitarfélaga
  • Veituframkvæmdum
  • Gatnagerð
  • Lóðaframkvæmdum

Vegna sterkrar verkefnastöðu hyggst fyrirtækið fjölga í hópi vélamanna og ökumanna.

Reynsla og meiraprófsréttindi skilyrði

Helstu verkefni í starfinu eru:

  • Akstur krókbifreiðar
  • Akstur fjögurra öxla vörubifreiðar með malarpalli
  • Skráning ferða og dagsskýrslna
  • Almenn umhirða bifreiða
  • Tilfallandi verkefni á verkstað

Leitað er að einstaklingum með meiraprófsréttindi í flokki C og er CE réttindi talin kostur. Þá er reynsla af akstri dráttarbíla og vinna við vinnuvélar einnig kostur.

Fyrirtækið segir boðið upp á sveigjanlegt starfsumhverfi og tækifæri til starfsþróunar hjá ört vaxandi fyrirtæki.

Umsóknarfrestur er til 15 júní 2026

Heimild: Alfred.is