Home Fréttir Í fréttum 23.06.2026 Bygging nýrra stúdentagarða við Norðurslóð á Akureyri – Útboð

23.06.2026 Bygging nýrra stúdentagarða við Norðurslóð á Akureyri – Útboð

415
0
Útboð

Útboð:

Félagsstofnun stúdenta á Akureyri (FÉSTA) hefur auglýst útboð vegna byggingar nýrra stúdentagarða við Norðurslóð 3–5–7 á Akureyri.

Verkefnið felur í sér byggingu þriggja nýrra fjölbýlishúsa ásamt öllum frágangi innan- og utanhúss. Heildarstærð framkvæmdarinnar er um 6.700 fermetrar.

Samkvæmt útboðsgögnum verða alls 62 litlar íbúðir og 64 einstaklingsherbergi reist ásamt stoðrýmum og aðstöðu fyrir starfsfólk.

Umfangsmikið verkefni til ársins 2029

Helstu verkþættir framkvæmdarinnar eru:

  • Jarðvinna
  • Uppsteypa þriggja húsa, 4–5 hæða
  • Allur frágangur innan og utan
  • Lóðarfrágangur

Áætlað er að framkvæmdir hefjist í júlí 2026 og að verkinu ljúki í júní 2029.

Tilboð opnuð 23. júní

Ósk um afhendingu rafrænna útboðsgagna skal senda á netfangið bjorgvin@avh.is og verða gögn afhent frá og með 19. maí 2026.

Tilboð skulu berast rafrænt fyrir klukkan 13:00 þriðjudaginn 23. júní 2026. Tilboðin verða opnuð klukkan 13:30 hjá AVH Kaupangi á Akureyri í viðurvist þeirra bjóðenda sem þess óska.

Bjóðendum verður jafnframt gefinn kostur á að fylgjast með opnun tilboða í fjarfundi óski þeir þess.

Eldri frétt frá 2023: Nýir stúdentagarðar rísa á háskólasvæðinu á Akureyri