Home Fréttir Í fréttum Nú hægt að þinglýsa kaupsamningum á örfáum mínútum

Nú hægt að þinglýsa kaupsamningum á örfáum mínútum

36
0
Monika Hjálmtýsdóttir, formaður Félags fasteignasala og framkvæmdastjóri Landmarks fasteignamiðlunar og Ragna Klara Magnúsdóttir viðskipta- og sölustjóri Signicat á Íslandi. Ljósmynd/Aðsend

Nú er hægt að þinglýsa kaupsamningum vegna fasteignaviðskipta rafrænt á örfáum mínútum, ferli sem áður gat tekið allt að nokkrar vikur á pappír.

Undanfarin ár hefur tæknin umbreytt fasteignaviðskiptum á Íslandi, en nú hafa orðið merkileg tímamót sem munu breyta upplifun kaupenda og seljenda til frambúðar. Með nýrri lausn Félags fasteignasala og Signicat er nú hægt að þinglýsa kaupsamningum rafrænt á örfáum mínútum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Signicat.

Heimild: Mbl.is