Home Fréttir Í fréttum Nýjar höfuðstöðvar Festi rísa við Urðar­hvarf

Nýjar höfuðstöðvar Festi rísa við Urðar­hvarf

218
0
Ásta S. Fjeld­sted, for­stjóri Festi, tók fyrstu skóflu­stunguna að nýjum höfuðstöðvum sam­stæðunnar. Ás­dís Kristjáns­dóttir, bæjar­stjóri Kópa­vogs, var viðstödd. Ljósmynd: Anton Brink

Festi undirbýr að flytja höfuðstöðvar félagsins frá Dalvegi 10-14 að Urðarhvarfi 10.

Nýjar höfuðstöðvar smásölufyrirtækisins Festi munu rísa við Urðarhvarf 10 í Kópavogi og tók Ásta S. Fjeldsted, forstjóri Festi, fyrstu skóflustunguna á dögunum að viðstaddri Ásdísi Kristjánsdóttur, bæjarstjóra Kópavogs.

Gert er ráð fyrir að nýju höfuðstöðvarnar verði teknar í notkun innan þriggja ára.

Fasteignin verður um 6 þúsund fermetrar að stærð, þar af verða um 4 þúsund fermetrar lagðir undir skrifstofur rekstrarfélaga samstæðunnar, Krónunnar, N1, ELKO, Lyfju, Yrki og móðurfélagsins Festi, auk tæplega 800 fermetra verslunarrýmis á jarðhæð og lageraðstöðu í kjallara.

Samhliða stækkun samstæðunnar undanfarin ár hefur Festi lagt áherslu á að sameina skrifstofur og stoðþjónustu félaganna undir eitt þak til að efla samstarf og lækka kostnað. Bæði ELKO og Lyfja hafa flutt skrifstofur sínar á síðastliðnum tveimur árum í núverandi höfuðstöðvar félagsins á Dalvegi í Kópavogi, sem hefur skilað góðum árangri.

„Við endurskoðun á núverandi leigusamningi var tækifærið nýtt til að meta húsnæðisþörf samstæðunnar til lengri tíma, með áherslu á hagræði, aðstöðu og sveigjanleika,“ segir í tilkynningu frá Festi.

Tölvugerð mynd af Urðarhvarfi 10.
© Studio B (Studio B)

Áhersla á lækkun kostnaðar og aukinn sveigjanleika

Ásta S. Fjeldsted, forstjóri Festi, segir nýja húsnæðið skapa samstæðunni betri aðstöðu og aukinn sveigjanleika til framtíðar.

„Í ljósi þeirra miklu tæknibreytinga sem nú eiga sér stað þarf að huga vandlega að vinnustað framtíðarinnar. Nýja húsnæðið mun bæta vinnuaðstöðu starfsfólks og verður hannað með það fyrir augum að geta aðlagast breytingum á starfsemi samstæðunnar, hvort sem er í stækkun eða minnkun. Það húsnæði sem er ekki nýtt verður leigt út til annarra aðila eftir aðstæðum hverju sinni,“ segir Ásta.

„Urðarhvarfið er vel staðsett, ekki síst með nýrri tengingu við Arnarnesveginn, og reynsla okkar af skrifstofu- og atvinnurekstri í Kópavogi hefur verið afar góð. Við hlökkum til að fylgjast með uppbyggingunni og stefnum að því að flytja innan þriggja ára.“

Núverandi höfuðstöðvar Festi að Dalvegi 10-14.
© Aðsend mynd

Mikilvæg uppbygging fyrir Kópavog

Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs, segir ánægjulegt að Festi kjósi að hafa áfram höfuðstöðvar sínar í Kópavogi.

„Festi hefur verið mikilvægur hluti af atvinnulífi Kópavogs um árabil og það er gleðiefni að félagið sjái hag sinn í því að vera áfram með höfuðstöðvar sínar í bænum. Uppbyggingin við Urðarhvarf styrkir atvinnusvæðið enn frekar og er jákvætt framlag til áframhaldandi þróunar svæðisins. Þetta er í takt við áherslur okkar í Kópavogi að skapa atvinnulífinu trausta umgjörð til vaxtar innan bæjarfélagsins,” segir Ásdís.

Heimild: Vb.is