
Tafir hafa orðið á framkvæmdum við leikskólann Brákarborg en framkvæmdum við leikskólann átti að ljúka í síðasta mánuði.
Samkvæmt upplýsingum frá Reykjavíkurborg uppfylltu nokkrar rúður við inngang hússins ekki ýtrustu brunakröfur. Rúðunum verður skipt út snemmsumars að sögn borgarinnar.
Í svari borgarinnar segir að um sé að ræða mistök frá því að húsið var upphaflega endurgert. Leikskólinn Brákarborg hefur ítrekað ratað í fréttir vegna tafa á framkvæmdum.
Í lok árs 2021 festi Reykjavíkurborg kaup á húsnæðinu, sem áður var kynlífstækjaverslunin Adam og Eva. Ráðist var í miklar breytingar og flutti leikskólinn inn í ágúst 2022.
Heimild: Mbl.is











