Home Fréttir Í fréttum Garðabær skrifar undir verksamning vegna Ungmennahrauns

Garðabær skrifar undir verksamning vegna Ungmennahrauns

225
0
Guðbjörg Brá, sviðsstjóri umhverfissviðs Garðabæja, og Svanhildur Þengilsdóttir, sviðsstjóri velferðarsviðs Garðabæjar, ásamt Almari Guðmundssyni og Hrafni Þór við undirritun verksamningsins. Myndir: Garðabær

Garðabær hefur skrifað undir verksamning við Aðalvík ehf. vegna innanhússfrágangs í Ungmennahrauni, nýju úrræði fyrir ungmenni með miklar stuðningsþarfir.

Aðalvík sér um framkvæmdirnar

Almar Guðmundsson bæjarstjóri Garðabæjar og Hrafn Þór Jörgensson fyrir hönd Aðalvíkur ehf. skrifuðu undir verksamning um framkvæmdina.

Áhersla hefur verið lögð á að hanna fallegt og aðgengilegt umhverfi.

​Nordic Office of Architect­ure hannar rýmið

Framkvæmdir við Ungmennahraun hefjast á næstunni. Nordic Office of Architecture hannar rýmið en Aðalvík ehf. sér um framkvæmdir og innanhússfrágang. Strendingur annast eftirlit með framkvæmdinni.

Áhersla hefur verið lögð á að hanna fallegt og aðgengilegt umhverfi Ungmennahrauns. „Garðabær hefur lagt mikla vinnu í að hanna rýmið með þarfir ungmennanna að leiðarljósi“

Starfsmenn frá velferðarsviði og umhverfissviði, starfsmenn Ungmennahrauns, Almar og fulltrúar frá Aðalvík og Stendingi skoða nýja rýmið.

Ungmennahraun fyrir ungmenni með stuðningsþarfir

Í Ungmennahrauni í Garðabæ verður lögð áhersla á að veita þjónustu sem tekur mið af þörfum og getu hvers og eins. Markmiðið er að veita ungmennum með miklar stuðningsþarfir öruggt og skapandi umhverfi til að efla félagsfærni og sjálfstæði í aðlaðandi umhverfi.

Heimild: Garðabær