Hveragerðisbær og Byggingafélag námsmanna ses. undirrituðu í gær viljayfirlýsingu um byggingu allt að 24 íbúða fyrir námsmenn við Gróðurmörk í Hveragerði.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hveragerðisbæ.
Uppbyggingin er í samræmi við deiliskipulag bæjarins sem nú er í vinnslu en gert er ráð fyrir að íbúðirnar verði tveggja herbergja og u.þ.b. 60 fermetrar að stærð að meðtalinni sameign.
Auk íbúðanna er ráðgert að byggður verði sameiginlegur þjónustukjarni með þvottaaðstöðu, hjóla- og vagnageymslu, ásamt lærdóms- og félagsrými fyrir íbúa nemendagarðanna.

Mikið lífsgæðaskref fyrir stúdenta og fjölskyldur þeirra
Í bænum búa tæplega 3.000 manns, en uppbyggingu námsmannaíbúða segir bæjarstjóri til þess fallna að framlengja þann tíma sem stúdentar dvelja í Hveragerði og auka möguleikana á því að nýta menntun þeirra síðar meir í bænum.
Það sé mikið lífsgæðaskref fyrir stúdenta og fjölskyldur þeirra ásamt því að vera vísir að bjartri framtíð bæjarins.
Heimild: Mbl.is












