Framkvæmdir við stækkun Grensásdeildar halda áfram og eru í góðu samræmi við gildandi verkáætlun. Ytri byrði nýbyggingarinnar er nú langt komin og húsið að mestu orðið veðurþétt, með áframhaldandi frágangi utanhúss.
Innanhúss er umfangsmikil vinna í fullum gangi. Lagnakerfi eru komin langt á veg, uppsetning milliveggja er víða vel á veg komin og vinna í tæknirýmum og búnaðarrýmum er áberandi langt komin. Samhliða þessu er unnið að rafbúnaði, stjórnkerfum og öðrum tæknilegum innviðum sem mynda grunn að starfsemi deildarinnar.

Undirbúningur næstu áfanga er einnig hafinn, þar á meðal skipulagning innréttinga og áætlanagerð vegna tækjakaupa og annars sérhæfðs búnaðar. Sú vinna er lykilatriði til að tryggja hnökralausa innleiðingu starfsemi þegar framkvæmdum lýkur.
„Framkvæmdir ganga vel og eru í góðu samræmi við gildandi verkáætlun,“ segir Kristinn Jakobsson, verkefnastjóri hjá NLSH.
Heimild: Nýr Landspítali












