Home Fréttir Í fréttum 03.03.2026 Þorraholt – Malbikun og yfirborðsfrágangur

03.03.2026 Þorraholt – Malbikun og yfirborðsfrágangur

26
0
Mynd: Garðabær

Garðabær óskar eftir tilboðum í verkið: Þorraholt: Malbikun og yfirborðsfrágangur 2026

Verkið felst í jarðvegsskiptum, upphækkun brunna og niðurfalla, gerð snjóbræðslukerfis í götu og stíga, malbikun gatna og stíga ásamt yfirborðsfrágangi í Þorraholti í Garðabæ.

Helstu magntölur eru: 

  • Heflun og þjöppun yfirborðs 2.210 m2
  • Burðarlag 390 m3
  • Malbikun 4.640 m2
  • Hellulögn 513 m2
  • Þökulögn 50 m2
  • Forsteyptur kantsteinn 397 m
  • Upphækkun á brunnum 6 stk
  • Niðurföll 4 stk
  • Snjóbræðslulagnir 9.973 m

Verkinu skal lokið fyrir 15. júní 2026.

Tilboð verða opnuð með rafrænum hætti á hjá Eflu hf, Lynghálsi 4, þriðjudaginn 3. mars klukkan 14.00.