Home Fréttir Í fréttum 18.07.2025 Seltjarnarnesbær. Leikskóli við Suðurströnd, nýbygging

18.07.2025 Seltjarnarnesbær. Leikskóli við Suðurströnd, nýbygging

38
0
Mynd:. VÍSIR/VILHELM

Seltjarnarnesbær óskar eftir tilboðum í verkið Leikskóli við Suðurströnd, nýbygging. 

Í verkinu felst jarðvinna, uppsteypa og fullnaðarfrágangur innanhúss og utan á um 1.700m2 leikskóla og tilheyrandi lóð við Suðurströnd nr. 1 á Seltjarnarnesi.

Leikskólinn er á tveimur hæðum að hluta og tengist núverandi leikskólabyggingu með tengigangi. Um er að ræða steypta byggingu sem er einangruð og klædd að utan með málmklæðningu.

Helstu magntölur eru:

  • Jarðvinna: ~4.000 m3
  • Steinsteypa: ~1.060m3
  • Steypumót:      ~7.500m2
  • Bendistál:         ~90 tonn
  • Einangrun og klæðning útveggja: ~900m2
  • Lóðarfrágangur     ~1.500m2

Útboðsgögn eru öllum aðgengileg með rafrænum hætti, án endurgjalds á útboðsvef VSÓ Ráðgjafar á vefslóðinni https://vso.ajoursystem.net/  frá og með miðvikudeginum 18.06.2025 kl. 14:00

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef eigi síðar en föstudaginn 18.07.2025, kl. 14:00.