
Meistaradeild Samtaka iðnaðarins segja að um 600 til 1.000 nemendum sé synjað um skólavist í iðn- og tækninámi á ári hverju. Ástæðuna telja þeir vera skort á aðstöðu, þ.e. fjármagni og húsnæði. Samtökin kalla eftir því að framkvæmdum við verknámsskóla verði flýtt.
Þetta kemur fram í ályktun frá MSI. Þar segjast samtökin fagna áherslu ríkisstjórnarinnar um eflingu verknáms með uppbyggingu í framhaldsskólum og fleiru. Þau telja þörfina þó brýna og að betur megi gera, ef duga skuli, því skorturinn sé orðinn alvarlegur.
MSI segir að í könnun meðal aðildarfyrirtækja Samtaka iðnaðarins hafi 48% starfsfólks og 56% stjórnenda þeirra talið að „alvarlegur skortur á iðnmenntuðu starfsfólki,“ sé til staðar.
Þarf 800 rafvirkja á næstu 5 árum
Fyrirtæki í rafiðnaði telja til dæmis að ráða verði um 800 rafvirkja á næstu fimm árum. 67% stjórnenda fyrirtækja í iðnaðinum segja erfiðleika við að fá fólk í þau störf hafa hamlað vexti fyrirtækjanna.
Þá segir MSI einnig að hlutfall ungmenna á Íslandi sem velja iðnnám sé lægra en gengur og gerist í öðrum OECD-ríkjum. Því vilji þau breyta með markvissum aðgerðum.
Heimild: Mbl.is