Sveitarfélagið Hornafjörður, hér eftir nefnt verkkaupi, óskar eftir tilboðum í verkið „Gáran Sæbraut 1 – Viðbygging“ eins og því er lýst í meðfylgjandi útboðsgögnum.
Hér er um almennt útboð að ræða og lýtur þeim reglum sem um það gilda. Innifalið í tilboð skal vera allt það sem til þarf að ljúka verkinu eins og það er skilgreint í útboðsgögnum.
Lauslegt yfirlit yfir verkið
Fyrirhugað er að setja sorppressu í sorpmóttöku sveitarfélagsins, Gáruna, sem stendur við Sæbraut 1 á Höfn í Hornafirði og fyrir hana þarf að stækka núverandi sorpmóttöku. Um er að ræða stækka núverandi 411,3 m²límtréshús um 110 m², húsið er með límtrésburðarömmum á steypta veggi með steyptri plötu með sperrum og klætt valsaðri bárujárnsklæðningu (óeinangrað), viðbygging verður eins uppbyggð. Opna þarf á milli rýmana og fjalægja hluta af núverandi klæðningu.
Helstu stærðir eru ca. brúttó:
- Viðbygging : 110 m²
- Mótafletir : 125 m²
- Steypustyrktarstál : 2800 kg
- Steypa : 40 m³
- Límtréssperrur (115×500) L= 15,5 m 4 stk
- Sperrur (45×220) 500 m
- Hurðir. Vöruhurðir 2. stk og 1. hefðbundin neyðarútgangshurð
Húsið er óeinangrað með steyptri vélslípaðri plötu.
Útboðið innifelur heildarfrágang mannvirkisins í heild sinni, þ.a.s. fullfrágengnu mannvirki, tilbúnu til notkunar.
Framkvæmdartími
Verkinu skal vera að fullu lokið eigi síðar en 15. desember 2025 og miðast sú dagsetning við að tilboði hafi verið tekið og búið sé að semja við verktaka þann 07. júlí 2025.
Útboðsgögn
Útboðsgögn, dagsett í maí 2025, og bera nafnið:
Gáran Sæbraut 1 – Viðbygging og sundurliðast eftirfarandi:
- Útboðslýsing gerð af Verkhofi ehf.
- Teikningar og verklýsingar, gerðar af Verkhofi ehf.
- Teikningar og verklýsingar vegna raflagna gerðar af Tækniþjónustunni SF.
- Tilboðseyðublað ásamt tilboðsskrá
- ÍST 30.
Útboðsgögn fást afhent rafrænt án endurgjalds með því að senda tölvupóst á utbod@hornafjordur.is og óska eftir því að fá send útboðsgögn í verkið „Gáran Sæbraut 1 – Viðbygging“ Þá verður fljótlega sendur hlekkur til baka á þann stað sem hægt verður að sækja gögnin. Vinsamlegast takið fram í viðfangsefni pósts „Gáran Sæbraut 1 – Viðbygging“
Frekari fyrirspurnir skal senda á eftirfarandi netfang: utbod@hornafjordur.is og bjorni@hornafjordur.is og skal þá merkja “subject” reitinn: Gáran Sæbraut 1 – Viðbygging – FYRIRSPURN. Fyrirspurn skal berast í síðasta lagi 5 virkum dögum fyrir opnunardag tilboðs.
Skil og opnun tilboðs.
Tilboðsgjafar skulu vera búnir að skila inn tilboði eigi síðar en Fimmtudaginn 19 júní 2015 kl. 14:00. Tilboðum skal skilað á skrifstofu Sveitarfélagsins Hornafjörður, Hafnarbraut 27, 780 Hornafirði og verða þau opnuð samtímis í fundarsal Sveitarfélagsins á 3. hæð í viðurvist þeirra bjóðenda sem óska eftir að vera viðstaddir.
Geti bjóðandi ekki komið útfylltum útboðsgögnum á opnunarstað til opnunar, er heimilt að senda undirritað tilboð ásamt fylgigögnum með tölvupósti á netfangið utbod@hornafjordur.is og skal það hafa borist áður en skilafrestur er runninn út en bjóðandi skal þá jafnframt hafa póstlagt með ábyrgðarpóstsendingu, a.m.k. degi áður en opnun tilboða fer fram, gögn sem fylgja eiga tilboðinu og skal staðfesting þess efnis fylgja með tölvupóstinum. Berist tölvupóstur ekki í tæka tíð fyrir opnun tilboða er það á ábyrgð bjóðanda og telst tilboðið þá ógilt.
Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Tilboð eru bindandi í 5 vikur frá Opnunardegi
Nánari upplýsingar veitir: Björn Imsland, bjorni@hornafjordur.is sími 470-8000