Landsvirkjun, hér á eftir nefnt verkkaupi, óskar eftir tilboðum í verkið: 2025-15 BUF37 Stöðvarveitur, en um er að ræða hönnun, útvegun og uppsetningu á rafbúnaði í safnstöð á framkvæmdasvæði fyrirhugaðs vindorkuvers við Vaðöldu neðan við Sultartangastíflu í Rangárþingi ytra, hér eftir nefnt verkið.
Bygging safnstöðvarinnar (samningur BUF10) mun hefjast á vormánuðum 2025 og mun halda áfram í vetur og inn á árið 2026.
Helstu verkþættir verksins eru eftirfarandi:
- Útvegun og uppsetning á 33 kV dreifingu.
- Uppsetning á 11 kV dreifingu.
- Útvegun og uppsetning á stöðvarnotkunarspennum.
- Smíði og uppsetning á 400 V aðaldreifingu.
- Smíði og uppsetning á tveimur jafnstraumsdreifingum.
- Útvegun, forritun og uppsetning á stjórn- og varnarbúnaði.
- Eftirlit, tenging og frágangur á 33 kV og 11 kV strengjum.
- Útvegun og uppsetning á 220 kV gegnumtökum.
Þetta er verkframkvæmd undir viðmiðunarfjárhæðum og er boðin út sem opin verðfyrirspurn.
Útboðsgögn afhent: | 09.05.2025 kl. 11:52 |
Skilafrestur | 19.06.2025 kl. 13:00 |
Opnun tilboða: | 19.06.2025 kl. 13:00 |