Vegagerðin auglýsir eftir þátttakendum í forvali vegna jarðganga milli Arnarfjarðar og Dýrafjarðar, ásamt byggingu tilheyrandi forskála, brúa og vega. Um er að ræða 8,0 m breið, 5,3 km löng jarðgöng í bergi, styrkingu ganga, lagnir og vegyfirborð, raf- og stjórnbúnað þeirra, um 300 m langa steinsteypta vegskála og um 9,0 km langa vegi utan ganga. Í göngin skal leggja háspennulagnir 33 KV og 66 KV fyrir Orkubú Vetfjarða og Landsnet.
Heiti verkefnisins er: Dýrafjarðargöng
Helstu magntölur eru:
- Gröftur jarðganga 310.000 m3
- Sprautusteypa 14.000 m3
- Forskeringar 50.000 m3
- Fylling 500.000 m3
Forvalsgögn verða send í tölvupósti þeim sem óska eftir að taka þátt í forvali frá og með mánudeginum 9. maí 2016. Óskir um forvalsgögn skal senda á póstfangið olafur.k.kristjansson@vegagerdin.is, með upplýsingum um nafn fyrirtækis, nafn tengiliðar ásamt tölvupóstfangi og símanúmeri.
Forvalsgögn eru á ensku og samskipti á forvalstíma mega vera á ensku, dönsku, sænsku eða norsku, auk íslensku. Útboðsgögn verða á íslensku og öll samskipti á útboðs- og samningstíma verða á íslensku.
Skila skal útfylltum forvalsgögnum í lokuðu umslagi merktu á eftirfarandi hátt til Vegagerðarinnar Borgartúni 7 (móttaka) í síðasta lagi þriðjudaginn 28. júní 2016.
Vegagerðin, móttaka
Borgartúni 7
105 Reykjavík
Norðfjarðargöng
Forval
Einungis gögn sem hafa borist Vegagerðinni þriðjudaginn 28. júní 2016, fyrir lok skrifstofutíma (kl 16:00) eða eru sannanlega póstlögð fyrir þann tíma eru tekin gild.
Forvalið er einnig auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.