Úr fundargerð Framkvæmda- og hafnarnefnd Ölfuss
þann 26.04.2022
Yfirborðsfrágangur Hraunshverfi
Fyrir framkvæmda- og hafnarnefnd lágu niðurstöður útboðs í verkið yfirborðsfrágangur Hraunshverfi áfangi 2.
Alls 5 tilboð bárust í verkið.
1. Ellert Skúlason ehf. 74.214.000 80%
2. Jarðlist ehf 76.848.840 82%
3. Smávélar ehf 78.691.000 84%
4. Jón og Margeir ehf 79.920.000 86%
5. Aðalleið ehf 80.002.500 86%
Kostnaðaráætlun. 93.262.100 100%
Nefndin samþykir að samið verði við lægstbjóðanda að uppfylltum skilyrðum útboðsgagna.