Verkið felst í gerð göngu og hjólastíga í Elliðaárdal, nánar tiltekið frá Rafstöðvarvegi að göngu- og hjólastíg vestan vestari kvísl Elliðaáa ásamt tilheyrandi lýsingu. Til verksins heyrir einnig smíði brúa yfir bæði eystri og vestari kvísl Elliðaánna.
Jarðvegsskipta skal undir stígum og undirstöðum brúa, leggja jöfnunarlag, púkkmulning og malbika. Smíða skal um 23m langa stálbrú yfir eystri kvíslina og 12m trébrú yfir vestari kvíslina og byggja tilheyrandi undirstöður. Meðfram stígum skal koma fyrir ljósastreng og reisa ljósastólpa.
Helstu magntölur eru:
• Uppgröftur 460 m³
• Fyllingar 1.600 m³
• Malbikun 1.740 m²
• Stálvirki í eystri brú 18.200 kg
• Límtrésbrú vestari brú 12 lm
• Steyptar undirstöður 25 m³
• Uppsetning ljósstólpa 14 stk
• Þökulögn með úthagatorfi 380 m²
• Hellulögn á umferðaröldu 50 m²
• Grassteinn 15 m²
Lokaskiladagur verksins er 1. júní 2016.
Útboðsgögn á geisladiski verða seld á 3.000 kr. frá fimmtudeginum 24. september 2015 í þjónustuveri Reykjavíkurborgar, Borgartúni 12–14, 1.hæð, 105 Reykjavík.
Opnun tilboða: Fimmtudaginn 8. október 2015 kl. 10:00, í Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík. Tilboðum skal skilað í þjónustuver Reykjavíkurborgar.