Umhverfissvið Mosfellsbæjar óskar eftir tilboðum í verkið:
Yfirlagnir og viðgerðir gatna 2015
Um er að ræða viðgerðir á malbiki gatna og yfirlagnir á götum í Mosfellsbæ.
Helstu magntölur eru: | |
Malbikun – yfirlögn | 8.740 m² |
Fræsun gatna | 8.740 m² |
Viðgerðir á malbiki | 650 m² |
Magntölur geta breyst verktíma í samráði við verkkaupa.
Verkinu skal lokið fyrir 1. ágúst 2015
Útboðsgögn er hægt að nálgast hjá Bæjarskrifstofur Mosfellsbæjar, Þverholti 2, Þjónustuver 2.hæð, þriðjudaginn 5 maí 2015.
Tilboðum skal skilað á sama stað eigi síðar en þriðjudaginn 19 maí 2015, kl. 14.00 að viðstöddum þeim bjóðendum er þess óska.