Reykjanesbær býður út þjónustu og viðhald gatnalýsingar
Reykjanesbær býður út þjónustu og viðhald gatnalýsingar í sveitarfélaginu samkvæmt útboði nr. 2698.
Um er að ræða þjónustusamning vegna viðhalds gatna- og stígalýsingarkerfis í eigu Reykjanesbæjar.
Tilboðum skal skilað fyrir 22. júní 2026 og verða þau opnuð sama dag með rafrænum hætti.
Viðhald gatna- og stígalýsingar
Útboðið nær til þjónustu og viðhalds á gatnalýsingarkerfi Reykjanesbæjar sem samanstendur meðal annars af:
- Dreifikerfi gatnalýsingar
- Strengjum og tengiskápum
- Ljósastaurum
- Lömpum og ljósabúnaði
Starfssvæðið nær yfir allt sveitarfélagið Reykjanesbæ.
Rafræn skil tilboða
Útboðsgögn eru aðgengileg í útboðskerfi NTI Bidco og skulu öll tilboð berast rafrænt í gegnum kerfið.
Opnun tilboða fer fram með rafrænum hætti og verður opnunarskýrsla send öllum bjóðendum að opnun lokinni.
Tilboðs- og opnunardagur
- Skilafrestur tilboða: 22. júní 2026 kl. 12:00
- Opnun tilboða: 22. júní 2026 kl. 12:05
Allar fyrirspurnir vegna útboðsins skulu berast í gegnum útboðsvef Reykjanesbæjar.












