Home Á döfinni Fyrirhugaðar opnanir útboða 01.05.2026 TO2-01 Þorlákshafnarlína 2, 132 KV Jarðstrengur – Jarðvinna og Lagning Jarðstrengs...

01.05.2026 TO2-01 Þorlákshafnarlína 2, 132 KV Jarðstrengur – Jarðvinna og Lagning Jarðstrengs – Útboð

229
0
Mynd: Landsnet

Útboð:

Verkið felst í því að grafa fyrir og leggja 132 kV jarðstreng, Þorlákshafnarlínu 2 (TO2), frá nýju endamastri sem reist verður í Sogslínu 2 við Hveragerði og að tengivirki við Þorlákshöfn (TOR).

Strengleiðin er um 21,2 km á lengd. Grafið er fyrir strengnum og þrír einleiðarar sem mynda TO2-strenginn verða lagðir í þríhyrningsuppröðun í strengsand á um eins metra dýpi.

Vinnuslóð verður gerð meðfram strengleiðinni þar sem þörf er á. Vinna við að koma fyrir undirstöðum og stagfestum fyrir endamastur er einnig hluti af þessu verki, ásamt frágangi yfirborðs.

Útboðsgögn afhent: 01.04.2026 kl. 10:00
Skilafrestur 01.05.2026 kl. 14:00
Opnun tilboða: 01.05.2026 kl. 10:00

Nánari upplýsingar er að finna í útboðsgögnum.

Sjá frekar.