Home Fréttir Í fréttum Kísilverið United Silicon þarf að borga rúman milljarð til ÍAV

Kísilverið United Silicon þarf að borga rúman milljarð til ÍAV

154
0
Mynd: RÚV

United Silicon þarf að greiða verktakafyrirtækinu ÍAV rúman einn milljarð króna vegna ógreiddra reikninga kísilversins í Helguvík. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins kvað þriggja manna gerðardómur upp úrskurð þess efnis á mánudag.

<>

Krafa ÍAV hljóðaði upp á rúma tvo milljarða króna auk dráttarvaxta eins og Fréttablaðið fjallaði um í apríl. Reikningarnir vegna framkvæmda við verksmiðjuna námu þar af 1,1 milljarði króna en verktakinn hafði einnig gert bótakröfu vegna riftunar á samningi um að ÍAV kæmi að framkvæmdum á öðrum og þriðja áfanga kísilversins.

Forsaga málsins er sú að ÍAV var aðalverktaki kísilversins en starfsmenn fyrirtækisins lögðu niður störf í Helguvík í júlí í fyrra. Sigurður R. Ragnarsson, forstjóri ÍAV, boðaði þá að meintar vanefndir United Silicon færu fyrir gerðardóm. Það ferli hófst mánuði síðar þegar verktakafyrirtækið skipaði sinn mann í gerðardóminn og í febrúar síðastliðnum höfðu deilendurnir báðir lagt fram greinargerðir sínar.
Magnús Garðarsson, stærsti eigandi kísilversins og þáverandi stjórnarmaður, sagði í ágúst í fyrra að deilan við ÍAV hefði orðið til þess að verkinu hefði seinkað um tvær vikur. Hafði Magnús þá áður kennt ÍAV um seinkun á gangsetningu verksmiðjunnar eða í júní 2016 þegar ÍAV hótaði fyrst að leggja niður störf.

Rúmum mánuði eftir að ÍAV hætti vinnu við kísilverið höfðu starfsmenn þess ekki fengið afhentan tækjabúnað sem þeir voru neyddir til að skilja eftir á lóð United Silicon þegar lá við handalögmálum milli starfsmanna fyrirtækjanna tveggja. Sigurður sagði þá að stærstur hluti um eins milljarðs króna kröfu ÍAV vegna ógreiddra reikninga væri gjaldfallinn og að hann teldi að eigendur kísilversins ættu ekki fyrir framkvæmdinni.

Sigurður vildi ekki tjá sig um niðurstöðu gerðardómsins og Magnús Garðarsson hætti í stjórn kísilversins í byrjun árs. Kristleifur Andrésson, upplýsingafulltrúi United Silicon, segir ekki ákveðið hvort málinu verður áfrýjað.

„Við skoðum bara dóminn og þegar við erum búin að fara yfir hann og lesa þá metum við framhaldið,“ segir Kristleifur.

Heimild: Visir.is