Tilboð opnuð 20. júní 2017. Gerð 4,9 km langs vegar um Berufjarðarbotn ásamt smíði 50 m langrar brúar og gerð 1,7 km langra heimreiða að bæjunum Berufirði og Hvannabrekku. Annars vegar er um að ræða nýbyggingu á 2,9 km kafla Hringvegar norðan Berufjarðar og er um 1 km af þeim hluta yfir sjávarvog. Hins vegar er endurgerð Hringvegar á 2,0 km löngum kafla sunnan Berufjarðar.
Helstu magntölur eru:
Vegahluti
- Skeringar 95.000 m3
- Þar af í berg 65.000 m3
- Fyllingar 251.000 m3
- þar af í sjó og yfir leirur 133.000 m3
- Lenging og endurlögn ræsa 600 m
- Styrktarlag 31.000 m3
- Burðarlag 9.000 m3
- Tvöföld klæðing 39.000 m2
- Rofvörn 12.000 m3
Brúarhluti
- Gröftur úr afstífaðri gryfju (sponsþili) 3.700 m3
- Fylling við steypt mannvirki 2.000 m3
- Mótafletir 1.338 m2
- Steypustyrktarjárn 47.910 kg
- Spennt járnalögn 9.979 kg
- Steypa 606 m3
- Vegrið á brú 102 m
Verkinu skal að fullu lokið 1. september 2018.
Bjóðandi | Tilboð kr. | Hlutfall | Frávik þús.kr. |
Borgarverk ehf., Borgarnesi | 1.034.735.000 | 128,2 | 191.980 |
ÍAV hf., Reykjavík | 992.631.031 | 123,0 | 149.876 |
Suðurverk hf., Kópavogi | 920.667.000 | 114,1 | 77.912 |
Héraðsverk ehf. og MVA ehf., Egilsstöðum | 842.755.323 | 104,4 | 0 |
Áætlaður verktakakostnaður | 807.222.000 | 100,0 | -35.533 |