Ríkiseignir óska eftir verktökum til að taka þátt í örútboði vegna breytinga á eldhúsi við Heilbrigðisstofnun Suðurlands, Sólhlíð 20 í Vestmannaeyjum. Verkið felst í endurgerð eldhúss og innréttingu matsals.
Æskilegt er að bjóðendur hafi reynslu af sambærilegu verki.
Þeir sem hafa áhuga á að fá send gögn og taka þátt í örútboðinu eru beðnir um að senda póst á kjartan@ríkiseignir.is
Tilboð verða opnuð hjá Ríkiseignum, Borgartúni 7a, 105 Reykjavík kl. 15.00 fimmtudaginn 8. júní 2017.