Hafnasjóður Fjarðabyggðar óskar eftir tilboðum í ofangreint verk.
Helstu verkþættir og magntölur eru:
· Reka niður 42 stk af tvöföldum stálþilsplötum, bolta 65m langan stagbita við þilið og koma fyrir 18 stögum.
· Jarðvinna, upptekt og fylling um 5.100 m³
Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. október 2017.
Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Borgartúni 7 í Reykjavík (móttöku) og á bæjarskrifstofu Fjarðabyggðar frá og með þriðjudeginum 30. maí 2017.
Verð útboðsgagna er 5.000 kr.
Tilboðin skulu berast á bæjarskrifstofu Fjarðabyggðar, Hafnargötu 2, 730 Fjarðabyggð eða til Vegagerðarinnar, Borgartúni 7 í Reykjavík og eigi síðar en þriðjudaginn 13. júní 2017, kl 14:00 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag á sömu stöðum.