F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Endurnýjun gönguleiða 2017 – Útboð nr. 13999
Steyptar stéttar: 2.120 m2
Hellulagðar stéttar: 225 m2
Steyptur kantsteinn: 580 m
Lokaskiladagur verksins er 1. október 2017
Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar frá kl. 10:00 þriðjudaginn 30. maí 2017 á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is
Finna má leiðbeiningu um nýskráningu fyrirtækja á vefslóðinni http://reykjavik.is/utbodsauglysingar. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella „New supplier registration“ og fylgja leiðbeiningum á skjá.
Vakin er athygi á að senda verður fyrirspurnir vegna útboðsins í gegnum útboðsvef innkaupadeildar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef innkaupadeildar Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 14:00 þann 13. júní 2017.