12.5.2017
Vegagerðin býður hér með út endurbyggingu Kísilvegar frá slitlagsenda við Kollóttuöldu að Geitafellsá, samtals 11,2 km.
Helstu magntölur eru:
– Efnisvinnsla 40.450 m3
– Skeringar 2.510 m3
– Fláafleygar 38.470 m3
– Neðra burðarlag (styrktarlag) 9.010 m3
– Efra burðarlag 19.550 m3
– Tvöföld klæðing 79.100 m2
– Frágangur fláa 48.400 m2
Verkinu skal að fullu lokið 1. október 2018.
Útboðsgögnin eru seld hjá Vegagerðinni, Miðhúsavegi 1, 600 Akureyri og í móttöku Vegagerðarinnar, Borgartúni 7, 105 Reykjavík frá og með mánudeginum 15. maí, 2017.
Verð útboðsgagna er 4.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 30. maí 2017 og kl. 14:15 sama dag verða tilboðin opnuð á sömu stöðum að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.