Verktakafyrirtækið ÍAV krefst rúmlega tveggja milljarða króna auk dráttarvaxta frá United Silicon fyrir gerðardómi vegna ógreiddra reikninga og annarra meintra vanefnda kísilversins í Helguvík. Þetta herma heimildir Fréttablaðsins og að reikningar vegna framkvæmda við verksmiðjuna nemi þar af 1,1 milljarði króna.
ÍAV var aðalverktaki kísilversins en starfsmenn fyrirtækisins lögðu niður störf í Helguvík í júlí í fyrra. Sigurður R. Ragnarsson, forstjóri ÍAV, boðaði þá að meintar vanefndir United Silicon færu fyrir gerðardóm. Það ferli hófst mánuði síðar þegar verktakafyrirtækið skipaði sinn mann í gerðardóminn og í febrúar síðastliðnum höfðu deilendurnir báðir lagt fram greinargerðir sínar.
Verktakinn gerir samkvæmt heimildum blaðsins einnig bótakröfu vegna riftunar á samningi um að ÍAV kæmi að framkvæmdum á öðrum og þriðja áfanga kísilversins. Gerðardómurinn er skipaður einum manni frá ÍAV, öðrum frá United Silicon, og valdi Héraðsdómur Reykjaness oddamanninn.
Sigurður vildi í samtali við Fréttablaðið ekki tjá sig um kröfu fyrirtækisins en sagði að fyrirtækið hefði væntingar til þess að niðurstaða lægi fyrir í lok maí eða byrjun júní.
Magnús Garðarsson, stærsti eigandi kísilversins og þáverandi stjórnarmaður, sagði í ágúst í fyrra að deilan við ÍAV hefði orðið til þess að verkinu hefði seinkað um tvær vikur. Hafði Magnús þá áður kennt ÍAV um seinkun á gangsetningu verksmiðjunnar eða í júní þegar ÍAV hótaði fyrst að leggja niður störf. Ekki náðist í Magnús við vinnslu fréttarinnar eða lögmann United Silicon.
Rúmum mánuði eftir að ÍAV hafði hætt vinnu við kísilverið höfðu starfsmenn þess ekki fengið afhentan tækjabúnað sem þeir voru neyddir til að skilja eftir á lóð United Silicon þegar lá við handalögmálum milli starfsmanna fyrirtækjanna tveggja.
Sigurður sagði þá að stærstur hluti um eins milljarðs króna kröfu ÍAV vegna ógreiddra reikninga væri gjaldfallinn og að hann teldi að eigendur kísilversins ættu ekki fyrir framkvæmdinni.
Heimild: Visir.is