F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í verkið:
Hólabrekkuskóli áfangi 4 – Endurnýjun veðurkápu 2017. Útboð nr. 13980.
Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar frá kl. 13:00, miðvikudaginn 12. apríl 2017 á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is Nauðsynlegt er að nota Internet Explorer.
Finna má leiðbeiningu um nýskráningu fyrirtækja á vefslóðinni http://reykjavik.is/utbodsauglysingar – Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella „New supplier registration“ og fylgja leiðbeiningum á skjá.
Vakin er athygi á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef innkaupadeildar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef innkaupadeildar Reykjavíkurborgar eigi síðar en: kl. 10:00 fimmtudaginn 4. maí 2017.
Verkið felst í:
Endurnýjun veðurkápu á 4. áfanga Hólabrekkuskóla við Austurberg. Fjarlægja skal núverandi flísaklæðningu af húsinu, múra veggina og mála. Þá skal einnig endurnýja flóttahurðir úr áli og framkvæma nauðsynlegar lagfæringar á álgluggakerfi.
Helstu magntölur eru:
Fjarlæging og förgun flísa 588 m²
Múrhúðun 588 m²
Endurnýjun á flóttahurðum 4 stk
Sílanböðun 588 m²
Málun veggja 588 m²
Verklok eru 18. ágúst 2017.