Skipulagsstofnun telur að lagning Vestfjarðavegar um Teigsskóg muni hafa veruleg og óafturkræf áhrif á skóginn og segir jarðgöng undir Hjallaháls ásamt vegi yfir Ódrjúgsháls uppfylla best skilyrði um minnst umhverfisáhrif. Vegagerðin hyggst engu að síður óska eftir framkvæmdaleyfi um Teigsskóg. Þetta kom fram í fréttum Stöðvar 2.
Málið snýst um framtíðarlegu Vestfjarðavegar um Gufudalssveit og hvernig hægt verði að losna við tvo erfiða hálsa, Hjallaháls og Ódrjúgsháls. Vegagerðin, með stuðningi sveitarfélaga á Vestfjörðum, hefur lengi vilja leggja veginn um Teigsskóg en mætt andstöðu landeigenda og náttúruverndarsamtaka. Skipulagsstofnun birti síðdegis álit sitt á matsskýrslu Vegagerðarinnar.
„Við lögðum fram fimm valkosti og í raun leggst Skipulagsstofnun ekki gegn neinum þeirra,“ segir Hreinn Haraldsson vegamálastjóri.
Skipulagsstofnun telur í ljósi þess að allar veglínurnar fimm uppfylli umferðaröryggiskröfur hafi ekki verið sýnt fram á brýna nauðsyn á að leggja veginn um Teigsskóg, sem hefði í för með sér mest rask á verndaðu vistkerfi. Þá sé óvissa um áhrif þverana á lífríki í fjörum og grunnsævi en vegamálastjóri segir að því verði svarað með frekari rannsóknum strax í sumar.
Skipulagsstofnun telur að ekki verði hægt að fyrirbyggja eða draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum vegar um Teigsskóg nema að takmörkuðu leyti en telur að jarðgöng undir Hjallaháls ásamt endurbyggingu vegarins um Ódrjúgsháls hafi minnst umhverfisáhrif. Vegamálastjóri segir þá leið hins vegar 4,5 milljörðum króna dýrari. Auk þess fylgi jarðgangaleið undir Hjallaháls sá ókostur að áfram sé gert ráð fyrir vegi um Ódrjúgsháls.
Vegagerðin hyggst halda sínu striki og stefnir að því að umsókn um framkvæmdaleyfi vegar um Teigsskóg verði komin inn á borð sveitarstjórnar Reykhólahrepps í aprílmánuði.
„Við viljum það. Það er ekki síst með tilliti til þess að það er alveg ljóst að það liggur ekki fyrir fjármagn í miklu dýrari leiðir og við viljum bara fá þessar framkvæmdir í gang sem allra fyrst.“
Hreinn viðurkennir að mikil óvissa ríki um hversu hratt það gangi. „Ég er að vonast til að við getum eitthvað farið að hreyfa okkur í haust.“
Rifja má upp að fyrir fimm árum gaf Skipulagsstofnun afar neikvæða umsögn um annað verkefni á sunnanverðum Vestfjörðum, vegagerð um Kjálkafjörð og Kerlingarfjörð, og sagði skaða vegna framkvæmdanna verða óbætanlegan.
Þveranir fjarðanna yrðu mjög áberandi mannvirki og myndu rýra gildi svæðisins. Áhrif á landslag og verndarsvæði yrðu verulega neikvæð. Þrátt fyrir þessa umsögn Skipulagsstofnunar var vegurinn lagður og tekinn í notkun fyrir tveimur árum.
Heimild: Visir.is