Vegagerðin óskar eftir tilboðum í efnisvinnslu á Austursvæði á árinu 2017.
Helstu magntölur:
- Klæðingarefni 8/16 mm 11.300 m3
- Klæðingarefni 11/16 mm 600 m3
- Klæðingarefni 8/11 mm 600 m3
- Klæðingarefni 4/8 mm 2.550 m3
- Þvottur á steinrefnum 14.550 m3
- Malarslitlag 2.000 m3
- Efra burðarlag 0/22 mm 18.500 m3
Verki skal að fullu lokið 1. september 2017.
Útboðsgögn verða seld á minnislykli hjá Vegagerðinni Búðareyri 11-13 á Reyðarfirði og Borgartúni 7 í Reykjavík
(móttaka) frá og með mánudeginum 27. mars 2017. Verð útboðsgagna er 2.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 11. apríl 2017 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.