F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í verkið:
Úlfarsárdalur – hverfi 1, yfirborðsfrágangur 2017. Útboð nr. 13946.
Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá þriðjudeginum 28. mars 2017.
Finna má leiðbeiningu um nýskráningu fyrirtækja á vefslóðinni http://reykjavik.is/utbodsauglysingar – Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella „New supplier registration“ og fylgja leiðbeiningum á skjá.
Vakin er athygi á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef innkaupadeildar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef innkaupadeildar Reykjavíkurborgar eigi síðar en: kl. 14:00 þann 12. apríl 2017.
Lauslegt yfirlit yfir verkið:
Verkið felst m.a. í því að jafna undir gangstéttar, leggja snjóbræðslu, reisa ljósastólpa, steypa kantsteina, steypa gangstéttar, malbika, leggja hellur, þökuleggja og ganga frá gróðursvæðum.
Helstu magntölur eru:
• Gröftur: 250 m3
• Fylling : 250 m3
• Snjóbræðslulagnir: 450 m2
• Malbikun: 300 m2
• Kantsteinn: 1.100 m
• Steypt stétt: 1.700 m2
• Hellulögn: 300 m2
• Þökulögn: 1.000 m2
• Gróðurbeð: 400 m2
• Reisa ljósastólpa: 9 stk
Lokaskiladagur verksins er 15. október 2017.