Borgarstjórn samþykkti í dag tillögur borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins er varða Sundabraut og gatnamót við Reykjanesbraut og Bústaðaveg.
Tillaga borgarfulltrúa er varðar Sundabraut var á þá leið að borgarstjórn samþykki að hefja viðræður við innanríkisráðuneytið um Sundabraut. Markmið þess er að vinna að arðsemismati og kostnaðargreiningu, ákvarða endanlega útfærslu og legu brautarinnar og tímasetja framkvæmdina.
Í tillögunni er varðar gatnamót við Reykjanesbraut og Bústaðaveg var orðalagið upphaflega á þá leið að borgarstjórn samþykki að teknar verði upp viðræður við Vegagerðina um gerð mislægra gatnamóta við Reykjanesbraut-Bústaðaveg í því skyni að auka umferðaröryggi, draga úr mengun og greiða fyrir umferð.
Þessu orðalagi var breytt á þá leið að borgarstjórn samþykki að taka upp viðræður við Vegagerðina um útfærslu gatnamóta við Reykjanesbraut-Bústaðaveg í því skyni að auka umferðaröryggi, draga úr mengun og greiða fyrir umferð.
Voru báðar tillögurnar samþykktar einróma á fundi borgarstjórnar í dag.
Gert ráð fyrir Sundabraut frá árinu 1975
Í greinargerð sem fylgdi tillögunni um Sundabraut kemur fram að gert hafi verið ráð fyrir Sundabraut í aðalskipulagsuppdráttum Reykjavíkur frá árinu 1975. Var lagning Sundabrautar talin ein megin forsendan fyrir byggð í Grafarvogi þegar verið var að hefja uppbyggingu þar á fyrri helmingi níunda áratugarins.
„Auk þess var Sundabraut talin ein meginforsendan fyrir sameiningu Reykjavíkur og Kjalarneshrepps á sínum tíma. Allt bendir til þess að arðsemi af slíkum framkvæmdum verði mikil. Brautin yrði mikilvæg tenging við Grafarvog, eitt fjölmennasta hverfi borgarinnar. við iðnaðarsvæðið á Esjumelum og mikilvægt öryggisatriði ef kæmi til þess að rýma þyrfti stóran hluta borgarinnar á skömmum tíma,“ segir í greinargerðinni.
Þar kemur einnig fram að Sundabraut hafi síðast verið slegið á frest með samgöngusamningi Reykjavíkurborgar og ríkisins árið 2012 en þá var fyrirhugaðri lagningu frestað um heilan áratug, eða til ársins 2022.
„Engu að síður er enn gert ráð fyrir Sundabraut í núverandi aðalskipulagi. Nú á síðustu misserum hefur farið fram mikil skipulagsvinna í Elliðavogi og í Gufunesi og því er nauðsynlegt og löngu tímabært að ákveða endanlega legu og útfærslu brautarinnar svo aðrar skipulagsákvarðanir útiloki ekki hugsanlega besta kost í þeim efnum,“ segir í greinargerðinni.
Sérstaklega gætt að gangandi og hjólandi vegfarendum
Í tillögunni um gatnamót við Reykjanesbraut og Bústaðaveg er tekið fram að sérstaklega verði gætt að leggja áherslu á öryggi gangandi og hjólandi vegfarenda sem og greiða fyrir umferð strætisvagna um gatnamótin. Áhersla verði jafnframt lögð á að mannvirkið fari sem best í umhverfinu og að ríkulegt tillit verði tekið til náttúru Elliðaárdalsins við hönnun þess.
Heimild: Visir.is