Vegagerðin óskar eftir tilboðum í yfirlagnir með klæðingu á Austursvæði 2017.
Helstu magntölur eru:
- – Yfirlagnir með einföldu lagi klæðingar 384.347 m2
- – Yfirlögn með kílingu 24.755 m2
- – Flutningur steinefna 5.847 m3
- – Flutningur bindiefna 663 tonn
Útboðsgögnin eru seld hjá Vegagerðinni Búðareyri 11-13 á Reyðarfirði og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með mánudeginum 20. mars 2017. Verð útboðsgagna er 2.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 4. apríl 2017 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.