Hafnarfjarðarbær óskar eftir tilboðum í viðgerð á þökum á eftirtöldum mannvirkjum.
- Álfaskeið 64 C
- Álfaskeið 64 D
- Leikskólinn Norðurberg
- Tónkvísl
- Víðistaðaskóli – íþróttahús
Áætlaðir heildarfermetrar eru um 1080 m2
Hver verkstaður hefur sína verklokadagsetningu en öll verkin eiga að vera búin fyrir 10. ágúst 2017.
Útboðsgögn eru seld hjá umhverfis- og skipulagsþjónustu Hafnarfjarðarbæjar, Norðurhellu 2, frá og með þriðjudeginum 21. 03. 2017. Verð kr. 3.000.- Tilboð verða opnuð á sama stað, þriðjudaginn 4. apríl 2017, kl. 11.
Nánari upplýsingar veitir umhverfis- og skipulagsþjónusta.