Home Fréttir Í fréttum 04.04.2017 Miklabraut við Rauðagerði. Strætórein, stígar og hljóðvarnir

04.04.2017 Miklabraut við Rauðagerði. Strætórein, stígar og hljóðvarnir

269
0

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar, Vegagerðarinnar og Veitna ohf. er óskað eftir tilboðum í verkið:

<>

Miklabraut við Rauðagerði. Strætórein, stígar og hljóðvarnir. Útboð nr. 13920.

Útboðsgögn verða  eingöngu  aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.isfrá þriðjudeginum 21. mars 2017.

Finna má leiðbeiningu um nýskráningu fyrirtækja á vefslóðinni http://reykjavik.is/utbodsauglysingar – Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella „New supplier registration“ og fylgja leiðbeiningum á skjá.

Vakin er athygi á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef innkaupadeildar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef innkaupadeildar Reykjavíkurborgar eigi síðar en:  kl. 14:00 þriðjudaginn 4. apríl 2017.

Lauslegt yfirlit yfir verkið:
Um er að ræða gerð forgangsreinar Strætó á Miklubraut við Rauðagerði, gerð hljóðmana, stíga og hljóðveggja.  Verkið felst meðal annars í útvíkkun á götu Miklubrautar, upprif göngustíga og gróðurs, gerð fráveitulagna, gerð hljóðmana og hljóðveggja, lagningu raflagna, uppsetningu götulýsingar, hellulögnum, malbikun, þökulögn og gróðursetningu.

Lokaskiladagur er 15. október 2017.

Helstu magntölur eru:

 Uppúrtekt  8.400 m3
 Fylling  9.900 m3
 Grjótgrindur  1.085 m2
 Fráveitulagnir  91 m
 Niðurföll  19 stk
 Strengjalögn  1.090 m
 Ljósastólpar  20 stk.
 Mulningur  1.960 m2
 Malbik  4.920 m2
 Hellulögn  166 m2
 Kantsteinar  370 m
 Þökulögn  7.860 m2
 Gróðursetning  1.454 stk.