15.3.2017
Hafnasjóður Fjarðabyggðar óskar eftir tilboðum í verkið „Mjóeyri Harbour, land reclamation”. Um er að ræða fyllingu frá sjó við Mjóeyri á Reyðarfirði. Heildarmagn er áætlað um 156.000 m³ og skal fyllt í þremur áföngum.
Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. ágúst 2018.
Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Borgartúni 7 í Reykjavík og á bæjarskrifstofu Fjarðabyggðar, Hafnargötu 2 á Reyðarfirði, frá og með föstudeginum 17. mars 2017. Verð útboðsgagna er 5.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 4. apríl 2017 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag.