Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar samþykkti þann 02.03.2017 útgáfu framkvæmdaleyfis til Vegagerðarinnar vegna jarðgangna milli Arnarfjarðar og Dýrafjarðar í Ísafjarðarbæ.
Skipulagslegar forsendur framkvæmdaleyfisins.
- Aðalskipulag Ísafjarðarbæjar 2008-2020
- Deiliskipulag við munna Dýrafjarðarganga í landi Dranga staðfest 15.09.2016
- Deiliskipulag við munna Dýrafjarðarganga í landi Rauðsstaða og Borgar, staðfest 15.09.2016
- Framkvæmdaleyfið er gefið út á grundvelli, Matsskýrslu Vegagerðarinnar, Jarðgöng á milli Arnarfjarðar og Dýrafjarðar í Vestur-Ísafjarðarsýslu, Mat á umhverfisáhrifum.
Álit Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum frá 17. maí 2013 má finna á eftirfarandi vefslóð: http://www.skipulag.is/media/attachments/Umhverfismat/961/2009060020.pdf
Jarðgöng milli Arnarfjarðar og Dýrafjarðar, Ísafjarðarbæ. Mat á umhverfisáhrifum: http://www.skipulag.is/media/attachments/Umhverfismat/962/endanleg%20matskyrsla.pdf
Samkvæmt áliti Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum frá 17. maí 2013 eru ekki sett skilyrði fyrir leyfisveitingunni, hinsvegar telur Skipulagsstofnun að:
- Áhrif framkvæmdarinnar á fornleifar verði nokkuð neikvæð m.a. þar sem fyrir liggur að ekki verður hjá komist að raska slíkum minjum. Stofnunin leggur áherslu á að farið verði í hvívetna eftir ábendingum Minjastofnunar Íslands, eins og Vegagerðin fyrirhugar.
- Vegna röskunar á gróðurlendum t.a.m. 10 ha í Arnarfirði þar af 4 ha votlendis og í Dýrafirði 12 ha af gróðurlendum þar af votlendi 0.3 ha. leggur Skipulagsstofnun áherslu á mikilvægi þess að Vegagerðin verði í samráði við landeigendur, Náttúrustofu Vestfjarða og Umhverfisstofnun, um endurheimt þess votlendis sem raskist.
Í matsskýrslu Vegagerðarinnar, með umsókn um framkvæmdaleyfi kemur fram hvernig Vegagerðin muni bregðast við ofangreindum atriðum.
Heimild: Isafjarðarbær.is